|
||||||
|
Velkomin á heimasíðu Fljótsdalshrepps. Síðuhönnuður er Fljótsdælingurinn, Elfar Þórarinsson frá Víðivöllum ytri 2, sem dvelst við nám í Danmörku. Heimasíðan er enn í nokkurri mótun og er ætlað að þróast, eftir því sem íbúar og aðrir notendur síðunnar telja til framfara. Á síðunni nú er t.d. hægt að sjá hverjir eru kjörnir í sveitarstjórn og nefndir og lesa fundargerðir. Upplýsingar eru um skrifstofu sveitarfélagsins og tengingar á heimasíður ýmissa félaga og stofnana sem sveitarfélagið er aðili að. Samþykktir og skipulög sveitarfélagsins verða aðgengilegar á heimasíðunnni, sem og gjaldskrár og eyðublöð. Þá verður heimasíðan notuð til miðlunar á upplýsingum um viðburði og annað sem koma þarf á framfæri við íbúa og aðra notendur. Á síðunni er myndasíða með myndum úr Fljótsdal. Umræðutorgið á að nýtast til almennra samskipta , þar geta íbúar og aðrir komið skoðunum sínum á framfæri, nú eða bara sent inn góða brandara. Öll umræða verður á ábyrgð viðkomandi. Það er ósk okkar sem að hönnun og tilveru heimasíðunnar hafa komið, að hún nýtist Fljótsdælingum vel, verði lifandi og aðgengileg. Með bestu kveðju, Gunnþórunn Ingólfsdóttir oddviti Til Baka |
|||||
|
||||||