Gengið frá verksamningi við MVA Byggingaverktaka ehf.

Fljótsdalshreppur hefur gengið frá samningi við MVA Byggingarverktaka ehf. vegna uppbyggingar þjónustuhúss við Hengifossá. Samningurinn felur í sér uppsteypt þjónustuhús, eins og fram kemur á BIM verkefnavef og verklýsingu dagsettri 17. desember 2021, sem er hluti þessa verksamnings. Fram kemur að vinnu á byggingarstað verði lokið eigi síðar en 23.12.2022.