Styrkir til áfangarstaða í Fljótsdal

Þær ánægjulegu fréttir bárust frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða að sveitarfélagið fær styrkveitingu til tveggja verkefna árið 2022. Annars vegar styrk að fjárhæð 7,5 mkr. vegna verkefnisins ,,Hengifoss - bætt aðstaða og verndun náttúru" og hinsvegar 1 mkr. vegna ,,Strútsá - endurbætur á göngubrú". Þetta kemur sér afar vel til uppbyggingar áfangarstaða í sveitarfélaginu.