Byggða- og samveruhátíðin 2022

Hátíðin Dagar myrkurs verður haldin á Austurlandi 31. október – 6. nóvember og er þetta í 23. skipti sem hátíðin er haldin.  Dagar myrkurs er sameiginleg byggðahátíð allra íbúa á Austurlandi sem hefur það að markmiði að leggja áherslu á viðburði sem hvetja til samveru íbúa. Í ár, sem endranær, hvetjum við íbúa, fyrirtæki og stofnanir, félagasamtök og einstaklinga til að búa til viðburði sem við öll getum tekið þátt í.

Mánudagurinn 31. október er Hrekkjavökudagur og þann dag ætlum við að hafa búningadag í öllum fjórðungnum.  Þennan dag eru fyrirtæki, skólar og aðrar stofnanir sérstaklega hvattar til að gera sér glaðan dag, hægt er að veita verðlaun innan fyrirtækja fyrir frumlegasta búninginn, fallegasta búninginn og/eða hræðilegasta búninginn.  Minnt er á að hátíðin á sér sterkar rætur en uppruna Hrekkjavöku, sem haldin er 31. október ár hvert, má rekja  til Kelta. Til forna færðu þeir þakkir fyrir uppskeru sumarsins og kölluðu hátíðina sína hátíð hinna dauðu. Sambærileg hátíð var haldin á Íslandi fyrir kristnitöku er kölluð var Veturnætur og hefur þjóðfræðingurinn Terry Gunnell bent á að Hrekkajvökuhátíðin eigi sér þannig í raun íslenskan uppruna. Þessi keltneska/íslenska hátíð fluttist síðan til vesturheims með Keltum og þekkjum við hana í dag sem Hrekkjavöku.

Ljósmyndasamkeppnin verður á sínum stað og þarf að senda myndir á netfangið dagarmyrkurs@austurbru.is og er síðasti skiladagur 6. nóvember nk.  Öllum er velkomið að taka þátt, eina skilyrðið er að þemað „myrkrið“ njóti sín á myndunum sem sendar eru inn.  Veitt eru verðlaun uppá 50.000.- fyrir fyrsta sætið og Austurbrú áskilur sér rétt til að nota innsendar myndir til að kynna hátíðina. 

Einnig verða veitt verðlaun fyrir best skreyttu gluggana og verða gjafabréf frá fyrirtækjum á Austurlandi í verðlaun.  Myndir af þeim skal einnig senda á netfangið dagarmyrkurs@austurbru.is og er síðasti skiladagur einnig 6. nóvember nk. 

Við hvetjum fyrirtæki, verslarnir, veitingastaði, sundstaði, hótel- og gistiheimili o.fl. til að bjóða uppá fjölbreytta „pop-up“ viðburði, afslætti og tilboð á vörum og þjónustu.

Til þess að hátíðin gangi vel þurfum við einnig að taka þátt í þeim viðburðum sem boðið er uppá.  Íbúar Austurlands eru hvattir til að taka virkan þátt í Dögum myrkurs sem er okkar sameiginlega byggðahátíð. Lýsingar og tímasetningar á viðburðum má finna á heimasíðum sveitarfélaganna, Facebook og Instagram, undir Dagar myrkurs.  

Öll sem hafa áhuga á að bjóða uppá opna viðburði eru beðin að hafa samband við verkefnastjóra Halldóru Dröfn Hafþórsdóttur og/eða menningarfulltrúa í sínu sveitarfélagi/byggðarkjarna.  Þeir sem stofna viðburði á Facebook eru hvattir til að gera Daga myrkurs að „Cohost“.

Einnig má endilega senda fréttir af lokuðum viðburðum, eins og t.d. í skólum, eða fyrirtækjum, senda myndir og segja frá skemmtilegum uppákomum.

 

Verum dugleg að taka myndir og deila þeim - notum:  #dagarmyrkurs og #austurland.

Nánari upplýsingar veitir Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir:  dora@austurbru.is // 470-3871

We use cookies on our website. Some of them are essential for the operation of the site, while others help us to improve this site and the user experience (tracking cookies). You can decide for yourself whether you want to allow cookies or not. Please note that if you reject them, you may not be able to use all the functionalities of the site.

Ok