Undirritun verksamnings um þjónustuhúsið við Hengifoss

Miðvikudagskvöldið 2. nóvember var ritaður verksamningur Fljótsdalshrepps við Austurbygg verktaka ehf upp á 145 mkr. Felur verkið í sér að klára þjónustuhúsið við Hengifoss eftir að MVA hefur steypt það upp og eru samningsbundin verklok 23. júní 2023.

Á myndinni eru Jóhann F. Þórhallsson oddviti og Ívar Karl Hafliðason verktaki að undirrita samninginn (mynd: HG)